8.11.2010 | 00:31
Þarf alltaf allt að fara til Reykjavíkur?
Vont þætti mér að horfa upp á Háskólann á Bifröst leggja upp laupana. Þar er nú kannski fyrst og fremst um að ræða tilfinningasemi manneskju sem hvort tvegga hefur verið þar í gamla Samvinnuskólanum og síðan í Samvinnuháskólanum sem síðar tók við. Samt er þetta ekki bara tilfinningasemi. Það er svo allt allt annað að stunda nám í umhverfi eins og því sem er á Bifröst að flóra íslenskra skóla væri mun fátæklegri ef Bifröst leggst af. Mér finnst líka algjörlega farið öfugt í hvað eigi að halda eftir á Bifröst og hvað eigi að færa til Reykjavíkur. Mér hugnast mun betur að reyna að sameina skólann á einhvern hátt öðrum skólum í heimahéraði og halda þessu eistaka samfélagi sem þarna er á lífi áfram.
Hugnast betur sameining innan Borgarfjarðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.